n00bz bloggar

n00bz bloggar

n00bz bloggar haus 1

26.maí

26. maí 2010 · 1 ummæli

Í dag mættum við klukkan 9 og tókum myndir af flest öllum. Við fengum myndir frá Guðnýju af nokkrum krökkum sem vantaði sem voru teknar í vetur. Svo fóru Ásdís og Hildur Hans Petersen og létum framkalla uþb. 100 myndir sem eru tilbúnar núna. Á morgun förum við aftur þangað og látum framkalla restina :-) Í kvöld ætlum við að reyna að hittast og setja upp bókina og hugsa hvernig við ætlum að setja hana fram. kv- n00bz

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

þriðjudaguinn 25.maí

25. maí 2010 · 1 ummæli

hæ!
Í dag komum við í skólann um 11 leytið og fórum í árbókarmyndartöku. Við hófumst svo handa við að taka myndir af krökkunum. Búnar að labba niður í Kúlu með nokkrum krökkum og tókum mynd af þeim þar (lýsir þeim svo vel að vera þar). Núna ætlum við að hitta nokkra hópa og taka fleiri myndir og hringja svo í frænda Hildar sem á prentsmiðju og ætlar að hjálpa okkur að prenta. Svo ætlum við að hitta Elínu klukkan 10 í fyrramálið (eða var það ekki þá?). Núna erum við búnar að taka að minnsta kosti 1/3 af myndunum, og fáar eftir :) !

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

Föstudagurinn 21.maí og eitthvað af helginni

23. maí 2010 · Engin ummæli

Á föstudaginn fórum við í alla hópanna og tókum fullt af myndum svo fór ég til tálknafjarðar og Ásdís og Hildur unnu myndirnar um helgina og tóku held ég fleiri myndir :D
Núna er bara næst á dagskrá að taka niður alla þá sem eiga eftir að fara í myndatöku og búa til facebook group eða eitthvað svoleiðis svo við getum klárað þetta sem fyrst.
Guðbjörg

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

fimmtudagurinn 20.maí

20. maí 2010 · 1 ummæli

Í dag komum við í skólann um 11 leytið og tókum myndir af krökkunum og svo skipulögðum við morgundaginn. Nú fer allt að koma, markmiðið er að vera komnar með myndir af öllum fyrir mánudag. Á morgun fer Guðbjörg til Tálknafjarðar og þá verða Ásdís og Hildur að taka myndir á meðan. Á morgun er planið svona :

12:30 : hitta hóp heima hjá Konna
13:00 : hitta hóp heima hjá Steinunni + aðrar stelpur úr öðrum hóp
13:30 : hitta hóp heima hjá Davíð
14:00 : hitta hóp heima hjá Hildi Esteri

Elín ef þú sérð þetta endilega skrifaðu hvenær þú vilt hitta okkur næst :)

kv. N00bz!

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

Miðvikudagurinn 19.maí

19. maí 2010 · Engin ummæli

Í dag var myndataka , sem var mjög hentugt og við náðum að taka mikið af myndum og þá sérstaklega af krökkum sem við þekkjum ekkert rosalega vel og létum hina krakkana vita að við myndum vera upp í skóla næstu daga og ef það væri ekki hægt kæmum við bara heim til þeirra . :D
Og svo erum við að redda pappír og ákveða stærð og hvað á að standa á forsíðunni á ljósmyndabókinni okkar.

Við eigum víst eftir að segja frá hvernig verkefnið okkar er og ég geri það bara hér :

Við erum að gera ljósmyndabók þar sem við sýnum (130) góðar ástæður fyrir því að 10undi bekkur Réttarholtsskóla er sá besti (bestur)   , með myndum af öllum nemendum og kennurum í 10unda bekk . Við ætlum að taka mjög svona frjálslegar myndir og reyna að fá svona einkennandi myndir af krökkunum , og setja allar myndirnar svo saman í bók , einfaldlega með myndum af okkur öllum því við erum ástæðan fyrir því að 10 bekkur Réttarholtsskóla er BESTUR :D

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Heimsókn til Rutar ljósmyndara :D

19. maí 2010 · 1 ummæli

Mamma og Pabbi Ásdísar keyrðu okkur á ljósmyndastofu Rutar , við vorum mættar stundvíslega klukkan 10 og Rut og samstarfskona hennar tóku á móti okkur . Við tókum myndavélina sem okkur var úthlutað frá skólanum með okkur og við fórum yfir helstu stillingar á myndavélinni með þeim og prófuðum þær smá . Eftir þessa kennslu á myndavélina kenndi hún okkur aðeins á photoshop og helstu stillingarnar sem við gætum þurft að nota. Við þökkuðum fyrir okkur og tókum svo strætó heim . Svo fórum við uppí skóla og tókum nokkrar myndir . :D

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

Föstudagur til Mánudags (14-17 maí)

17. maí 2010 · 2 ummæli

Við mættum á föstudeginum og Jón Pétur útskýrði vekefnin, og okkur var úthlutað kennurum(Elín). Við fórum og stofnuðum blogg og hittum síðan Elínu og ræddum hvernig best væri að vinna verkefnið(Ljósmyndabók). Elín tók vel á móti okkur og hringdi í ljómyndara fyir okkur.

Á mánudegi fór Guðbjörg uppí skóla og fékk upplýsingar um hvar, hvenær og hvernig við ættum að hitta ljósmyndara. Hún fékk þær upplýsingar að við færum til Rutar ljósmyndara, Skipholti 31 á morgun klukkan 10. Í kvöld ætlum við að íhuga hvernig útlit bókarinnar verður.

→ 2 ummæliFlokkun: Óflokkað

14. maí 2010 · 3 ummæli

n00bz komnar með blogg!

→ 3 ummæliFlokkun: Óflokkað

Fyrsta færslan

14. maí 2010 · 1 ummæli

Velkominn í bloggið þitt á Blogg.is. Þetta er fyrsta færslan þín sem þú getur breytt (eða eytt). Byrjaðu að blogga!

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað